Um Tender Habit
Tender Habit er íslenskt fatahönnunarmerki sem byggir á handverkshefð, næmni fyrir efnum og áhuga á formi, notkun og endingu. Vörumerkið þróast út frá þeirri hugsun að flíkur eigi að lifa með notandanum, eldast vel og halda gildi sínu yfir tíma.
Að baki Tender Habit er ég, Ragga Katla Geirsdóttir. Ég er alin upp í umhverfi þar sem handverk og fatahönnun voru hluti af daglegu lífi, og sú nálgun hefur fylgt mér í gegnum allt sem ég geri. Hún mótar hvernig ég vel efni, hugsa snið og vinn með ferlið sjálft.
Ég bjó og starfaði í Bandaríkjunum í rúmlega tvo áratugi sem fatahönnuður og bætti seinna við mig vefverslun, lengst af í Los Angeles og svo um tíma í Portland, Oregon. Sú reynsla kenndi mér að hugsa um hönnun sem ferli, frá efnisvali til þess hvernig flík lifir í notkun. Ég flutti alfarið heim árið 2018 og hef síðustu ár unnið í íslensku fatahönnunarsenunni.
Flíkur Tender Habit eru unnar úr náttúrulegum efnum og framleiddar á Íslandi í litlum upplögum. Ég legg áherslu á tímalausa hönnun, góð snið og efni sem hafa bæði áferð og endingu. Hönnunin er ekki hávær, heldur byggir á jafnvægi, hreyfingu og smáatriðum sem koma fram í notkun.
Tender Habit er í stöðugri þróun frekar en að fylgja árstíðabundnum sveiflum. Markmiðið er flíkur sem þú klæðist enn eftir tíu ár.