Terms of service

Verð og pantanir
Öll verð í vefverslun Tender Habit eru í íslenskum krónum (ISK) og innihalda virðisaukaskatt. Ef upp kemur augljós villa í verðmerkingu áskiljum við okkur rétt til að leiðrétta hana áður en pöntun er afgreidd.

Þegar pöntun hefur verið skráð fær viðskiptavinur staðfestingu í tölvupósti. Ef vara reynist ekki til á lager verður haft samband og boðin endurgreiðsla eða nýr afhendingartími.

Sendingar og afhendingar
Pantanir eru sendar með Dropp, sem býður afhendingu í pakkahólf, á afhendingarstað eða heim að dyrum. Sendingargjald er samkvæmt gjaldskrá Dropp og birtist í kaupferlinu. Afgreiðslutími er að jafnaði 2–5 virkir dagar frá pöntun. Viðskiptavinur ber ábyrgð á að gefa upp rétt heimilisfang.

Skil og endurgreiðslur
Samkvæmt íslenskum neytendalögum hefur viðskiptavinur 14 daga frest til að falla frá kaupum á vöru sem keypt er í fjarsölu. Fresturinn hefst við móttöku vöru. Til að nýta rétt til að falla frá kaupum þarf varan að vera ónotuð, í upprunalegu ástandi og með öllum merkimiðum. Við áskiljum okkur rétt til að hafna skilum ef varan ber merki um notkun, hefur verið þvegin eða skemmd. Viðskiptavinur ber kostnað af skilasendingu nema um gallaða eða ranga vöru sé að ræða.

Endurgreiðsla fer fram með sama greiðslumáta og notaður var við kaup, innan 14 daga frá því að varan hefur verið móttekin og staðfest að hún uppfylli skilyrði skila. Ef vara reynist gölluð eða röng er viðskiptavini boðin viðgerð, ný vara eða full endurgreiðsla í samræmi við réttindi samkvæmt neytendalögum.

Vörur sem eru sérpantaðar eða sérsniðnar eftir óskum viðskiptavinar eru ekki endurgreiddar nema um galla sé að ræða.

Greiðslumátar
Hægt er að greiða með helstu debet- og kreditkortum í gegnum örugga greiðslugátt Teya. Allar kortafærslur fara í gegnum dulkóðað kerfi Teya og eru ekki geymdar af Tender Habit.

Meðferð persónuupplýsinga
Við virðum friðhelgi viðskiptavina og vinnum með persónuupplýsingar í samræmi við gildandi persónuverndarlög. Upplýsingar eru eingöngu notaðar til að vinna úr pöntunum og bæta þjónustu. Gögn eru ekki afhent þriðja aðila nema það sé nauðsynlegt til að afgreiða pöntun eða vinna úr greiðslu. Viðskiptavinir geta óskað eftir aðgangi að sínum gögnum eða eyðingu þeirra með því að hafa samband.

Lög og ágreiningur
Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum.
Komist upp ágreiningur sem ekki tekst að leysa með samkomulagi verður honum vísað til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa eða dómstóla eftir atvikum.

Hafa samband
Rekstraraðili vefverslunar er Tender Habit / Ragnheiður Katla Geirsdóttir.

Sími: 772-2609
Netfang: info@tenderhabit.is
Kennitala: 260972-5539

Tender Habit er undanþegið virðisaukaskatti.

Viðskiptavinir eru hvattir til að hafa samband ef spurningar vakna varðandi pantanir, vörur eða skilmála.